Skapandi myndvinnsla með iPad
Fjóla Þorvaldsdóttir leikskólasérkennari/tölvukennari í leikskólanum Álfaheiði ætlar að leiddi þessa vinnustofu.
Í vinnustofunni fengu þátttakendur að leika og læra með iPad á skapandi hátt. Kennt var á smáforritin iMovie, StopMotion og í lokinn voru nokkur smáforrit kynnt.
Lögð var áhersla á að þátttakendur lærðu vel á forritin, hefðu gaman af viðfangsefnum sínum og skapi áhugaverð verkefni í félagi við aðra.
Eftir inngangs erindi fóru þáttakendur að vinna, fyrst æfðu þeir sig í hreyfimyndagerð og síðan í því að búa til svipmyndir, trailer í iMovie smáforritinu.
Hér fyrir neðan má sjá afrakstur vinnustofunnar.

Útikennsla
Anna Sigurborg Harðardóttir leikskólastjóri í leikskólanum Norðurberg í Hafnarfirði leiddi vinnustofu um útikennslu.
Í Hafnarfirði er frábært umhverfi til útikennslu og verður hraunið
vettvangur útikennslunnar í vinnustofunni. Anna Borg leikskólastjóri og leikskólakennarar í leikskólanum fóru með þátttakendum
í útikennslu í leikskólanum Norðurbergi.
En leikskólinn Norðurberg hefur markað sér ákveðna stefnu í sambandi við
útikennslu barna.
Útikennsla (hraunferðir, náttúruskoðun, skógarferðir) leikskólans hefur verið í stöðugri þróun undanfarin ár og hefur starfsfólk gert töluvert af því að fylgjast með og tileinka sér nýja hluti sem eru að gerast á þessu sviði bæði hér á landi og erlendis. Í Norðurbergi er litið svo á að flest það sem hægt er að gera innan veggja leikskólans sé einnig hægt að gera úti. Að með reglulegum og markvissum ferðum út í náttúruna sé hægt að koma inn á öll námsvið leikskóla og þannig stuðlað að auknum alhliða þroska barna.
Hér fyrir neðan eru myndir með frásögn frá viðfangsefnum vinnustofunnar.

Handbrúðuvinnustofa
Guðný Anna Annasdóttir leikskólakennari/listgreinakennari kenndi þátttakendum handbrúðugerð.
Guðný Anna bauð þátttakendum upp á að skapa eigin persónur. Það var brugðið á leik af því að leikurinn er frjóangi allrar listsköpunar. Það sem
Guðný Anna hafði að leiðarljósi í handbrúðugerðinni var að vinna með hugmyndir,
framkvæma, hvaða gildi hefur hugmyndin og mikilvægi þess að miðla sínum
hugmyndum. Unnið var að mestu með það sem kallað er "verðlaus
efniviður" í leikskólanum. Þ.a.l.
var fjölbreytileikinn í handbrúðugerðinni óendanlegur í þessari vinnustofu.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá vinnustofunni.

Hljóðfærasmíði
Pamela De Sensi, flautukennari og framkvæmdastjóri Töfrahurðar leiddi þátttakendur í gegnum það hvernig búa má til hljóðfæri úr ýmiss konar afgangsefnum. Sýnt var hvernig búa má til, úr ódýru efni, einfaldar trommur, blásturs- og strengjahljóðfæri sem henta ungum börnum. Hljóðfæragerðin miðar að því að börnin geti sjálf tekið þátt í smíðinni og aðferðirnar eru einfaldar.
Þátttakendur læðu ýmislegt um noktun hljóðfæra og fengu tækifæri til að búa til nokkur hljóðfæri úr efni sem er auðvelt að verða sér út um, jafnvel efni sem oftast lendir í ruslatunnunni heima fyrir. Þar má nefna plaströr, blöðrur, tré, rör, gamla stóla, bókahillur, niðursuðudósir, nælon- og stálstrengi, roð, plastflöskur og margt fleira. Sjá myndir.
Kynnt voru helstu grunnatriði í hljóðfæragerð, svo þátttakendur verði sjálfstæðir og geti í kjölfarið gert hljóðfæri úr þeim efnivið sem tiltækur er á hverjum stað.